IBO Book - IC

5

SÖLU- OG MARKAÐSKERFIÐ

Qualified Producer 42% afsláttur af vörum

7% ‑ 17% heildsöluhagnaður Réttindaöflun og afsláttur af vörum: • Safna þarf 2.500 viðskiptapunktum (VP) á samfelldu eins til þriggja mánaða tímabili, og þar af 1.000 VP fyrir eigin innkaup (PPV), og þá fæst 42% afsláttur af pöntunum frá og með næsta mánuði eftir að tilskilinn punktafjöldi náðist. Þú færist sjálfkrafa upp á Qualified Producer þrepið fyrsta dag næsta mánaðar eftir að tilskilinn fjöldi viðskiptapunkta náðist. Qualified Producer er staða sem gildir í eitt ár í senn og það þýðir að þú þarft að endurnýja réttindin árlega til að haldast á því þrepi. Mögulegar tekjur hjá Qualified Producer: • 42% smásöluhagnaður við sölu á vörum til viðskiptavina. • 7% ‑ 17% heildsöluhagnaður (heildsölutekjur). Þú getur unnið þér inn heildsölutekjur af vörum sem meðlimir í undirlínum þínum kaupa. Upphæðin sem þú vinnur þér inn nemur mismuninum milli afsláttar þíns og viðkomandi meðlims í undirlínunum við vöruinnkaup. (Qualified Producer fær t.d. 42% afslátt. Sé meðlimur í undirlínu með 35% afslátt skapast 7% heildsöluhagnaður (heildsölutekjur) af vöruinnkaupum þess meðlims).

57

Made with