IBO Book - IC
5
VIÐBURÐIR OG SKEMMTIFERÐIR
Meðlimum í Herbalife gefast ótalmörg tækifæri til að mæta á gífurlega gagnlega og hvetjandi fundi og viðburði sem tryggja þeim djúpstæða þekkingu og þjálfun og skapa þeim jafnframt dýrmætt tengsla- og stuðningsnet. Slíkir fundir eru úrvalsgóð leið til að auka fróðleik sinn um Herbalife og læra af velgengni annarra meðlima í fyrirtækinu. Leitaðu upplýsinga um væntanlega viðburði og skemmtiferðir á EMEA.HerbalifeEvents.com. Extravaganza-hátíð Herbalife
Skemmtiferðir Á hverju ári gefst þér tækifæri til að vinna þér inn þátttökurétt í stórkostlegri skemmtiferð að hætti Herbalife*. Boðið er upp á sannkallað lúxusfrí á einhverjum gullfallegum ferðamannastað þar sem þú getur slakað á og skemmt þér í hópi annarra meðlima alls staðar að af svæðinu. Meðlimir segja ávallt að þetta hafi verið besta fríið sitt það árið! EMEA.HerbalifeEvents.com
Á hverju ári safnast meðlimir alls staðar að af EMEA-svæðinu saman á glæsilega hátíð yfir langa helgi. Á þessum hvetjandi viðburði er boðið upp á fræðslu og þjálfun sem tengist viðskiptunum og vörunum, veittar eru viðurkenningar og þar að auki er skemmtunin aldrei langt undan. Ef velja ætti einn viðburð á ári, sem fólk hreinlega má ekki missa af, þá er það þessi. Kjörið er að bjóða nýjum meðlimum að ferðast með sér á Extravaganza- hátíð Herbalife. Við ábyrgjumst að nýir meðlimir þínir munu, rétt eins og þú, snúa heim á leið með aukalega orku og nýjar hugmyndir til að stíga framfaraskref í viðskiptunum. HerbalifeExtravaganza.com
* Unnt er að afla sér ítarlegra upplýsinga um réttindaöflun á emea.herbalifeevents.com.
64
Made with FlippingBook