IBO Book - IC
3
VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR
Hver er mismunurinn milli lífsstílsmiðstöðvar og næringarklúbbs? • Helsti mismunurinn er að þátttakendur þurfa að greiða ákveðið gjald til að skrá sig í næringarklúbb og hafa heimild til að mæta á klúbbfundi. Viðskiptavinir í slíkum klúbbum mæta venjulega daglega eða vikulega til að gæða sér á vörum og eiga notalegar stundir í návist við aðra. • Bæði lífsstílsmiðstöðvar og næringarklúbbar verða að lúta ákveðnum leiðbeiningum og reglum. Þú getur farið inn á MyHerbalife.com og skoðað og sótt þessar reglur.
Næringarklúbbur Hvað er næringarklúbbur?
Aðeins flóknari starfsemi
Rétt eins og lífsstílsmiðstöðvar eru næringarklúbbar vettvangur þar sem þátttakendur geta átt regluleg samskipti við fólk með líkt hugarfar og hyllt hver annan fyrir þær framfarir og þann næringarárangur sem þeir ná. Í sama húsnæði er svo unnt að stunda alls kyns aðrar viðskiptaaðferðir og aðgerðir. Í næringarklúbbi getur þú frætt viðskiptavini þína um mikilvægi réttrar næringar og hreyfingar til að njóta sem bestrar heilsu. Næringarklúbbar gera þér einnig kleift að kynna fólki vörurnar frá Herbalife og byggja upp hóp af viðskiptavinum. Athugaðu vinsamlegast að mögulegir og núverandi viðskiptavinir geta aðeins mætt í næringarklúbb ef þeim er boðið þangað persónulega. Hvernig getur þetta hjálpað þér að finna nýja viðskiptavini og veita virðisaukandi þjónustu? Samfélagsreynsla – Mögulegir viðskiptavinir geta kynnt sér vöruúrval Herbalife í félagslegu andrúmslofti og fyrir þig skapast tækifæri til að byggja upp og hlúa að persónulegum tengslum, sem eru einmitt kjarninn í beinni dreifingu. Tilgerðarlausar aðstæður – Klúbbarnir einkennast af óformlegu og óþvinguðu umhverfi þar sem þú getur frætt þátttakendur um næringarmál, spjallað um vörurnar og kynnt viðskiptatækifærið. Smásölutækifæri – Margir þátttakendur í slíkum klúbbum kaupa vörur til einkaneyslu.
HOLLRÁÐ Mundu að fá vísanir á fleira fólk hjá gestum þínum!
➡➡ Næringarklúbbar eru einstaklega árangursrík leið til að veita virðisaukandi þjónustu og byggja upp gjöful tengsl við viðskiptavini. Þeir eru afar gagnlegir til að rækta tryggð meðal viðskiptavina því þar skapast vettvangur til að sækja sér ómetanlegan stuðning og reglulegar samverustundir. Að sama skapi tryggja þeir þér gott tækifæri til að fylgjast gaumgæfilega með framförum hjá viðskiptavinunum, að verðlauna þá fyrir unnin afrek og síðast en ekki síst að byggja upp gefandi samfélag af fólki með svipað hugarfar.
Boð
Kynning og virðisauki
Samræður, mat og flokkun
Stuðningur við viðskipta vini og tryggð
1
2
3
4
31
Made with FlippingBook