IBO Book - IC
3
VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR
Efldu viðskiptin hjá þér með því að hjálpa öðrum
Árangur viðskiptavina er besta leiðin til að efla viðskipin. Eftir því sem fleiri viðskiptavinir ná árangri undir þinni leiðsögn fjölgar því fólki sem er bæði ljúft og skylt að deila velgengni sinni með öðrum. Þegar þú býður mögulegum og nýjum viðskiptavinum í einhverja starfsemi skaltu biðja þá að „taka með sér einhvern kunningja“. Ef þú dreifir boðskortum eða umsagnareyðublöðum skaltu auk þess ávallt skilja eftir pláss til að bæta inn nöfnum annarra sem viðskiptavinir þínir þekkja og gætu haft áhuga á frekari upplýsingum. Í kaflanum hér á undan fjölluðum við um viðskiptaaðferðir, sem eru frábær leið til að efla viðskiptin. Viðurkenningardagar fyrir viðskiptavini eru önnur góð leið til að skapa sér ný viðskipti. Viðurkenningardagar fyrir viðskiptavini
Með slíkum dögum er hugmyndin að kalla saman alla viðskiptavini sína einu sinni í mánuði til að fagna þeim markmiðum sem náðst hafa, veita viðskiptavinum örlítil verðlaun til að hylla þá fyrir framfarir og deila reynslusögum.
Auðvelt er að biðja viðskiptavini að taka með sér vini sína og fjölskyldu til að samfagna framförunum og árangrinum sem þeir hafa náð. Með því opnar þú heilum hópi af mögulegum viðskiptavinum leið að þér. Það er þó ekki allt og sumt. Þessir mögulegu viðskiptavinir eru mun líklegri til að skipta við þig og sýna raunverulegan áhuga á viðskiptum þínum og vörunum frá Herbalife. Ástæðan er sú að þeir hafa séð ljóslifandi dæmi um árangurinn sem unnt er að ná, stuðningsnetið sem boðið er upp á og verðlaunin sem hægt er að vinna sér inn. Slíkir dagar eru því kjörinn vettvangur til að leiða nýja gesti þína gegnum stutt lífsstílsmat, gefa þeim kost á að smakka hinar ljúffengu vörur svo þeir geti kynnst þeim af eigin raun og bjóða þeim að mæta aftur síðar í lífsstílsmat í heild sinni.
➡➡ Viðurkenningardagar fyrir viðskiptavini eru einstaklega árangursrík leið til að veita virðisaukandi þjónustu og byggja upp gjöful tengsl við viðskiptavini. Þeir eru afar gagnlegir til að rækta tryggð meðal viðskiptavina því þar skapast vettvangur til að sækja sér ómetanlegan stuðning og reglulegar samverustundir. Að sama skapi tryggja þeir þér gott tækifæri til að fylgjast gaumgæfilega með framförum hjá viðskiptavinunum, að verðlauna þá fyrir unnin afrek og síðast en ekki síst að byggja upp gefandi samfélag af fólki með svipað hugarfar.
33
Made with FlippingBook