IBO Book - IC

3

VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR

Gæti viðskiptavinur þinn þegið að fá dýrmæta fræðslu um heilnæma næringu? Þætti honum kannski eftirsóknarvert að geta lækkað kostnaðinn af vörupakkanum sínum frá Herbalife í framtíðinni? Hvatakerfi fyrir viðskiptavini gefur kost á öllu þessu og mörgu fleiru um leið og það hjálpar þér að byggja upp viðskiptin.

Hvatakerfi fyrir viðskiptavini snýst alfarið um tryggð: Samkvæmt því er þér heimilt að veita viðskiptavinum hvataverðlaun fyrir að gefa þér að minnsta kosti tvær vel heppnaðar vísanir, t.d á vini sína eða fjölskyldu. Þegar viðskiptavinur hefur með vísunum sínum skilað þér tveimur nýjum viðskiptavinum getur þú veitt honum viðurkenningu fyrir að vera kominn í flokk tryggra viðskiptavina. Tryggir viðskiptavinir fá síðan ýmiss konar hvataverðlaun frá þér fyrir ræktarsemi sína. Þau geta verið fólgin í ýmsu, á borð við að fá afslætti af framtíðarinnkaupum á vörum og vörupökkum, að öðlast þátttökurétt í mikilvægum fræðslufundum, að vera heiðursgestur í viðskiptavinateitum og að vera boðið á árangursnámskeið þar sem gestir geta aflað sér frekari fróðleiks um næringarmál, vörur frá Herbalife og leiðir til að ástunda heilnæman og virkan lífsstíl. Lykillinn að þessu öllu er að hjálpa viðskiptavinum að ná góðum árangri af vörunum og átta sig á virði þess að vera tryggur viðskiptavinur.

Skipuleggðu smökkunarteiti, lífsstílsmat og kynningu á heilnæmum morgunverði með fólki úr áhrifahring viðskiptavina þinna og hjálpaðu þeim þannig að skapa þér vel heppnaðar vísanir. Margir tryggir viðskiptavinir ákveða að grípa viðskiptatækifærið sjálfir og verða meðlimir í Herbalife. Um leið og þú hefur þjálfað nýjan meðlim heimilar þú honum að taka við þeim einstaklingum sem hann vísar á sem sínum eigin viðskiptavinum. Þetta er frábær leið til að byrja að byggja upp dreifingarhóp. Flettu á bls. 39 til að fá frekari upplýsingar um innskráningu nýrra meðlima. Á MyHerbalife.com getur þú sótt ítarlegar upplýsingar um hvatakerfið fyrir viðskiptavini.

34

Made with