IBO Book - IC
4
FRÆÐA, SÝNA, PRÓFA, FRAMKVÆMA
Að fræða, sýna, prófa og framkvæma
Á svipaðan hátt og barn lærir af foreldri sínu er frábært að styðjast við meginregluna um að fræða, sýna, prófa og framkvæma til að koma nýjum meðlimum af stað og þjálfa þá til að öðlast velgengni. Fyrst skalt þú… fræða nýja meðlimi þína um þá viðskiptaaðferð að nota, bera og tala, útskýra fyrir þeim viðskiptavinaflæðið og kenna þeim að halda lífsstílskynningu. Lýstu öllu ferlinu fyrir þeim svo þeir skilji það. Því næst skaltu… sýna þeim hvernig best er að flétta þessar aðferðir inn í daglega starfsemi sína í viðskiptunum. Þú getur boðið þeim að kynnast af eigin raun þeim viðskiptaaðferðum sem þú notar með því að mæta í alls kyns starfsemi hjá þér. Því næst leyfir þú þeim að… prófa að beita viðskiptaaðferðunum sjálfir, meðan þú ert enn á staðnum. Hjálpaðu þeim að velja þær viðskiptaaðferðir og aðgerðir sem þeir finna eðlilega tengingu við og hafa áhuga á. Gefðu þeim svo sjálfstraust til að… framkvæma hinar ýmsu aðferðir sjálfir án þíns liðsinnis. Beittu hvatningu, stuðningi og þekkingu þinni á sjálfstæðum viðskiptum að hætti Herbalife til að hjálpa þeim að stíga þetta næsta skref. hugmyndafræðinnar sem var kynnt hér að framan, einkum á fyrstu þremur mánuðum þeirra sem meðlimir, hjálpar þú þeim að forðast þau mistök sem þú gætir hafa gert. Jafnframt flýtir þú fyrir að þeir læri grundvallaratriðin í smásölu og umönnun viðskiptavina. Eftirfarandi dæmi sýnir hvernig hægt er að gera hugmyndafræðina um að fræða, sýna, prófa og framkvæma að veruleika: Að fræða Segðu meðlim þínum frá leiðum til að bjóða fólki í lífsstílsmat og farðu með honum gegnum allt ferlið, skref fyrir skref – allt frá því að semja sannfærandi 15 sekúndna texta, hagnýta sér barmmerkið á sem árangursríkastan hátt, framkvæma lífsstílsmat og líkamsgreiningu og stinga svo upp á einmitt rétta vörupakkanum sem smellpassar þörfum viðskiptavinarins. Gefðu honum ráð um hvernig best er að koma sölu til viðskiptavinar í höfn og svo það sem er allra mikilvægast – leiðir til að veita viðskiptavinum fyrsta flokks þjónustu eftir söluna, með vikulegri eftirfylgni og skipulögðum endurpöntunum. Þetta er einmitt hugmyndafræðin sem hinn nýi meðlimur mun fljótlega fylgja í eigin aðgerðum. Að sýna Fyrsta mánuðinn þurfa nýir meðlimir hjálp þína til að átta sig á hvernig smásöluferlið virkar í raun og veru. Sýndu þeim því hvernig á að standa að málum – bjóddu þeim að koma með þér þegar þú stundar smásölu og eftirfylgni og leyfðu þeim að fylgjast með þér í heilan dag. Þeir þurfa að sjá hvernig þú ferð að því að nálgast fólk sem þú þekkir ekkert fyrir og bjóða því í lífsstílsmat. Leggðu til að þeir skrifi niður minnispunkta og gættu þess að þeir séu tilbúnir áður en þeir hefjast handa sjálfir. Umfram allt skaltu ekki fara of fljótt yfir sögu á þessu stigi. Meginmáli skiptir að meðlimir þínir öðlist öryggi og sjálfstraust. Þjálfaðu meðlimina þína til árangurs Með því að veita meðlimum þínum leiðsögn á grundvelli
Að prófa Bjóddu upp á hlutverkaleik þar sem þú leyfir hinum nýja meðlim að æfa sig á þér fyrst. Því næst skaltu láta hann æfa sig á vinum sínum og fjölskyldu með þig sér við hlið svo þú getir fylgst með frammistöðunni. Ekki hika við að gefa álit þitt og benda á það sem betur mætti fara. Það er fullkomlega eðlilegt að byrjendur geri mistök. Að framkvæma Þegar þér finnst það vera tímabært skaltu leyfa nýjum meðlimum að hefjast handa sjálfir, án þín sér við hlið. Hvettu þá áfram og hughreystu þá, æfðu með þeim og hafðu trú á þeim. Stundum þurfa þeir nokkrar tilraunir áður en þeir verða alveg öruggir í framgöngu sinni. Vertu ávallt til taks, ef þeir þurfa einhvern til að spjalla við, og gættu þess að hlusta vel og svara öllum spurningum þeirra. Ef þörf krefur skaltu æfa með þeim nokkrum sinnum í viðbót. Eftir nokkrar tilraunir verða flestir meðlimir algerlega sjálfstæðir – sérstaklega eftir að þeir hafa fengið fyrstu pöntunina frá viðskiptavini.
Þú munt nota þá aðferð að fræða, sýna, prófa og framkvæma æ meira eftir því sem leiðtogahlutverkið vex hjá þér og þú ferð að hjálpa hinum nýju meðlimum að tileinka sér alls kyns aðra færni, t.d. að halda sitt fyrsta smökkunarteiti eða tala í fyrsta sinn opinberlega með því að segja árangurssögu sína á einhverju mannamóti. Hafðu ávallt gott og reglulegt samband við meðlimi þína í undirlínunum. Mundu að allt sem þeir læra kemur frá þér. Þeir munu því koma fram við sína viðskiptavini og meðlimi nákvæmlega eins og samskiptum ykkar á milli hefur verið háttað.
43
Made with FlippingBook