IBO Book - IC
4
ÞJÁLFUN NÝRRA MEÐLIMA
• Haltu reglulega hópfundi. Þar geta þeir tileinkað sér góðar ábendingar frá öðrum meðlimum í dreifingarhópnum þínum. Sömuleiðis er gott fyrir þá að sjá að þeir eru hluti af stærri liðsheild. • Haltu góðum tengslum við þá, þjálfaðu þá og hvettu þá til dáða jafnframt því að hjálpa þeim að halda kynningar. Fáeinar reglur sem muna þarf 30 daga skilafrestur gegn endurgreiðslu: Ef smásöluviðskiptavinur er af einhverjum orsökum ekki fullkomlega ánægður með einhverja vöru frá Herbalife, sem var keypt af meðlim í Herbalife, er viðskiptavininum heimilt að fara fram á endurgreiðslu frá sama meðlim innan 30 daga frá þeim degi þegar viðskiptavinurinn fékk vöruna í hendur. Viðkomandi meðlim í Herbalife ber að bjóða viðskiptavininum fulla inneign til kaupa á öðrum vörum frá Herbalife eða fulla endurgreiðslu kaupverðsins. Einnig er góð hugmynd að minna nýja meðlimi á að það stríðir gegn reglum Herbalife að selja vörur fyrirtækisins á eBay eða öðrum sambærilegum afsláttarsíðum á netinu. Það eru hin persónulegu samskipti, maður á mann, sem gefa meðlimum í Herbalife forskot. Takmörkun sem gildir um fyrstu pantanir: Samkvæmt reglunni um fyrstu pantanir er nýjum meðlim aðeins heimilt að panta vörur að andvirði 1.100 viðskiptapunkta (VP) í fyrstu pöntun sinni og hann má síðan að hámarki panta vörur að andvirði 3.999,99 VP samtals innan fyrstu 10 daganna. Þessi regla var sett til að hjálpa nýjum meðlimum að afla sér reynslu af vörunum, og stíga fyrstu skrefin í smásölu, en letja þá jafnframt frá miklum fjárútlátum áður en þeir hafa öðlast reynslu af vörunum. Takmarkanir á innkaupum: Samkvæmt breskri löggjöf frá 1997 um viðskiptakerfi (UK Trading Schemes Regulations) er meðlimum óheimilt að greiða eða skuldbinda sig til að greiða meira en 200 GBP innan fyrstu 7 daganna frá því að þeir undirrita umsóknina og samninginn um aðild. Þetta nær til kaupa á vörum frá Herbalife, lesefni, viðskiptagögnum o.s.frv.
Þjálfun nýrra meðlima
Stórkostleg tilfinning fylgir því að innskrá fyrsta meðliminn sinn. Viðskiptatækifæri Herbalife er nú orðið stærri þáttur í lífi þínu og viðskiptin nálgast að vera orðin hlutastarf hjá þér. Uppbygging undirlínu er hafin og um leið og þú uppfyllir skilyrðin til að verða Senior Consultant byrjar þú, auk afsláttarkjaranna, að fá heildsölutekjur* af pöntunum frá fólki í undirlínunum. Sá tími sem þú verð í að þjálfa sérhvern nýjan meðlim mun reynast þér afar dýrmætur – því velgengni hans verður jafnframt velgengni þín. Leiðir til að hjálpa nýjum meðlimum á fyrstu metrunum samninginn um aðild að Herbalife og gættu þess að þeir sendi þessi útfylltu gögn til Herbalife, ásamt staðfestingarblaðinu varðandi gullstaðalábyrgðina. • Kenndu þeim að fylla út pöntunareyðublað fyrir smásölu og önnur eyðublöð sem þeir munu nota reglulega í viðskiptunum. • Gakktu úr skugga um að þeir lesi allar bækurnar sem eru innifaldar í meðlimapakkanum – mikilvægt er að allir nýir meðlimir kynni sér reglur og fyrirmæli Herbalife til að tryggja að þeir stundi viðskiptin með gott siðferði og reglur fyrirtækisins að leiðarljósi. • Gættu þess að þeir séu sjálfir að nota réttar vörur og kynntu þeim vöruúrval Herbalife í heild sinni með því að fara með þeim yfir vörubæklinginn. • Hjálpaðu þeim að kynna mögulegum viðskiptavinum vörurnar í heimboðum (t.d. smökkunarteitum eða snyrtivöruteitum). • Útskýrðu fyrir þeim fyrstu þrepin í sölu- og markaðskerfinu og kosti þess að verða Senior Consultant, Success Builder og Supervisor. Undirstöðuatriðin • Hjálpaðu þeim að fylla út umsóknina og
42
Made with FlippingBook