IBO Book - IC
5
SÖLU- OG MARKAÐSKERFIÐ
Leiðangurinn upp þrep sölu- og markaðskerfisins
HOLLRÁÐ Fólkið sem þú blandar geði og ræðir málin við hefur áhrif bæði á persónuleika þinn og það sem þú áorkar. Því er góð hugmynd að umlykja þig öðrum jákvæðum og uppörvandi meðlimum í Herbalife sem gætu hjálpað þér að þroskast og blómstra. Með því að mæta reglulega á viðburði á vegum Herbalife, og gera þér far um að tala við fólk sem þú þekkir ekki fyrir, eykur þú sjálfstraust þitt. Það er einmitt höfuðatriði því vöxtur í viðskiptunum er afar háður því að tala við fólk og mynda ný tengsl!
Fyrsta markmiðið Sem glænýr meðlimur í Herbalife gætir þú alið þá von í brjósti að verða Supervisor eða komast þaðan af hærra í sölu- og markaðskerfinu. Að verða Senior Consultant ætti samt að vera þitt upphafsmarkmið. Strax frá fyrsta degi er mikilvægt að hafa traustar meginreglur að leiðarljósi við uppbyggingu viðskiptanna. Meðal þeirra má nefna að hugsa vel um viðskiptavini og veita þeim fyrsta flokks þjónustu, að varðveita tryggan hóp af viðskiptavinum sem pantar reglulega hjá þér og að þjálfa meðlimi þína til árangurs. Taktu þetta skref fyrir skref og settu þér lítil og viðráðanleg markmið. Sponsorinn þinn ætti að verða fyrstur til að ræða við þig um nauðsyn þess að setja sér áætlun til að auðvelda sér að klífa upp á næsta þrep. Dæmigerð leið þín upp á Senior Consultant þrepið gæti verið sem hér segir: • Að mæta í þá starfsemi sem er í boði hjá stuðningshópnum þínum í nágrenninu. • Að taka þátt í félagslífinu í starfsstöð sponsors. • Að mæta á innlenda og alþjóðlega viðburði á vegum Herbalife og taka viðskiptavini þína með þér. • Að hitta sponsorinn eða þjálfarann þinn reglulega, fara yfir mælistikur í viðskiptunum og aðlaga nálgun þína eftir þörfum.
54
Made with FlippingBook