IBO Book - IC
6
HJÁLPAR- OG KYNNINGARGÖGN
Daglegur fjöldi boðsgesta, kynninga og vísana
Daglegur fjöldi boðsgesta á fundi/ viðburði og raunveruleg mæting Þetta eyðublað gefur þér kost á að skoða hversu mörgum gestum þú þarft að bjóða til þess að nýir meðlimir bætist í hópinn. Fylltu það út daglega og þá getur þú séð svart á hvítu í lok mánaðarins hversu mörgum gestum þú þarft að bjóða að meðaltali til að öðlast einn nýjan meðlim.
Mánaðarlegt söluyfirlit Fylltu þetta eyðublað út daglega til að skrá á fljótlegan og auðveldan hátt hversu mikið þú selur í raun og veru á dag. Yfirlitið dregur einnig fram hagnaðinn sem þú færð í þína hönd sem meðlimur. Það er frábært til að átta sig á hvort einhver mynstur skapast og til hvaða viðskiptaaðferðar megi rekja þau.
Þetta eyðublað gefur þér kost á að skoða hversu mörgum gestum þú þarft að bjóða til þess að nýir viðskiptavinir bætist í hópinn. Fylltu það út daglega og þá getur þú séð svart á hvítu í lok mánaðarins hversu mörgum gestum þú þarft að bjóða að meðaltali til að öðlast einn nýjan viðskiptavin.
Mánaðarlegt yfirlit yfir heildartekjur Notkun á þessu eftirlitseyðublaði hjálpar þér að skoða hvernig tekjur þínar skapast svo þú getir fylgst með hvernig viðskiptin vaxa með tímanum. Uppfærðu það mánaðarlega og tilgreindu allt sem færir þér tekjur.
Mánaðarlegt hagnaðar- og kostnaðaryfirlit
Húseyðublaðið Þetta eftirlitseyðublað er gagnlegt til að greina viðskiptin í heild sinni – það hjálpar þér að skapa jafnvægi í viðskiptunum. Hversu miklum tíma verð þú í hverju herbergi? Á hvaða sviðum gætir þú bætt þig?
Fylltu þetta eyðublað út mánaðarlega. Þetta eftirlitseyðublað er mikilvægt því þar fylgist þú með útgjöldum þínum í hverjum mánuði – gættu þess að skrá hjá þér öll dagleg útgjöld svo þú getir fengið raunhæft yfirlit í lok mánaðarins.
Nú er kominn tími til að gera eitthvað í málunum! • Mættu eins oft og þú getur í alls kyns starfsemi sem sponsorinn þinn hefur í boði til að læra þær viðskiptaaðferðir sem hann notar og öðlast sjálfstraust til að leika þær eftir. • Settu þér markmið. • Byrjaðu á því að skipuleggja opnunarteiti/smökkunarteiti til að kunngera vinum þínum og fjölskyldu hin nýju og spennandi viðskipti að hætti Herbalife sem þú hyggst stunda framvegis. • Notaðu samfélagsmiðla – byrjaðu að byggja þér upp samfélag
við núverandi viðskiptavini. Lokamarkmiðið er að breyta viðskiptavinum sínum í trygga viðskiptavini og síðan í meðlimi. • Fylgstu vel með viðskiptavinunum – komdu þér upp einhverju skipulagi strax í dag til að hjálpa þér að viða að þér öllum nauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavinina og halda svo vel utan um þær. Það hjálpar þér við hina bráðmikilvægu EFTIRFYLGNI. • Biddu viðskiptavini þína um að vísa á fleira fólk. • Sæktu eftirlitseyðublöðin á MyHerbalife.com svo þú getir fylgst með frammistöðu þinni og sjóðflæðinu í viðskiptunum.
á vefnum. Það er frábær leið til að laða að sér mögulega viðskiptavini, fjölga í viðskiptavinahópnum og efla tengslin
69
Made with FlippingBook