IBO Book - IC
8
ORÐSKÝRINGAR
Mannúðarverðlaun HFF (HFF Humanitarian Award): Mannúðarverðlaun HFF, sem voru sett á stofn árið 2007, eru veitt sjálfstæðum meðlimum í Herbalife sem hafa með einstakri framtakssemi sinni og ósérhlífni lagt ríkulegan skerf af mörkum til að breyta lífi fólks með ýmiss konar samfélagsþjónustu og sýnt þannig í verki þá hugsjón HFF að láta gott af sér leiða. Tilkynnt er um verðlaunaþegann ár hvert á heiðursverðlaunahátíð Herbalife, Herbalife Honours. Meðlimapakki Herbalife (Herbalife Member Pack – HMP): Pakki sem meðlimir þurfa að kaupa þegar þeir innskrá sig hjá Herbalife. Meðlimur á efsta þrepi (First-Level Member): Allir sem innskrá sig sem meðlimir á þínum vegum eru taldir vera á efsta þrepi þínu í viðeigandi undirlínu. Næringarklúbbur (Nutrition Club): Vettvangur sem einkennist af samfélagskennd og stuðningi fyrir fólk sem vill leggja áherslu á góða næringu með því að nota vörur frá Herbalife ® . Sjálfstæður meðlimur í Herbalife (Independent Herbalife Member): Hver sá sem hefur keypt meðlimapakka Herbalife, skilað inn til fyrirtækisins gildri og rétt útfylltri aðildarumsókn og fengið hana samþykkta hjá Herbalife. Smásöluhagnaður (Retail Profit): Mismunurinn milli afsláttarverðs sem meðlimur greiðir fyrir vöru og smásöluverðs sem viðskiptavinur greiðir. Sölu- og markaðskerfið eða bara markaðskerfið (Sales & Marketing Plan): Þrepaskipt umbunarkerfi fyrir meðlimi í Herbalife sem gefur kost á stöðuhækkunum. Sponsor: Meðlimur sem innskráir nýjan meðlim í Herbalife á sínum vegum. Tekjustofn (Earn Base): Verðgildi sem vöru er gefið, í innlendri mynt, og er notað til að reikna út afslætti og tekjur. Umboðslaun (Royalty Override): Mánaðarleg greiðsla á bilinu 1% til 5% sem fullgildir Supervisorar fá af söluafköstum virkra Supervisora á efstu þremur þrepunum í hverri undirlínu sinni (Supervisorahópunum sínum). Umboðsstig (Royalty [Override] Points – RO): Stig sem eru notuð til að afla sér réttinda og byggjast á samanlögðum viðskiptum Supervisorahópa í undirlínum tiltekins Supervisors margfölduðum með umboðslaunaprósentu hans. Undirlína (Downline): Allir sem innskrá sig sem meðlimir á þínum vegum. Þeir meðlimir geta síðan innskráð meðlimi á sínum vegum og svo koll af kolli. Undirlínur þínar eru slíkar raðir af meðlimum á mörgum þrepum. Viðskiptaaðferðir (Business Methods): Hér er átt við þær aðferðir sem meðlimir nota í viðskiptunum til að sinna smásölu, nýliðun og varðveislu. Viðskiptapunktar án kvaða (Unencumbered Volume): Viðskiptapunktar sem engir meðlimir í undirlínunum eru að nota til að afla Supervisor-réttinda. Viðskiptapunktar fyrir eigin innkaup (Personally Purchased Volume – PPV): Viðskiptapunktar fyrir vörur sem eru pantaðar beint frá Herbalife á eigin aðildarnúmeri. Viðskiptapunktar með kvöðum (Encumbered Volume): Viðskiptapunktar sem meðlimir í undirlínunum eru að nota til að afla Supervisor-réttinda. Viðskiptapunktur (Volume Point – VP): Punktagildi sem öllum vörum frá Herbalife er gefið og er það sama í öllum löndum. Viðskiptavinur: Hver sá sem kaupir vörur Herbalife ® á smásöluverði hjá meðlim og er ekki sjálfstæður meðlimur í Herbalife sjálfur. Virkur Supervisor (Active Supervisor): Fullgildur Supervisor sem hefur uppfyllt öll skilyrðin til að fá barmpinna fyrir virka Supervisora, annaðhvort með 5 eða 10 steinum, á samfelldu þriggja mánaða tímabili. Þeir sem uppfylla skilyrðin í fyrsta sinn fá einstakan barmpinna fyrir virka Supervisora og jafnframt afreksskírteini í viðurkenningaskyni fyrir dugnaðinn.
Áhrifahringur (Circle of Influence): Fólk, á borð við fjölskyldumeðlimi, vini og starfsfélaga, sem þú þekkir nú þegar og gætir haft samband við sem mögulega viðskiptavini. BizWorks: Öflug vefþjónusta þar sem boðið er upp á alls kyns hjálpargögn fyrir viðskiptin sem eru hönnuð af meðlimum fyrir meðlimi. Þessi vefþjónusta gerir meðlimum kleift að halda vel utan um viðskiptin og vinna að framgangi þeirra. Þannig stuðlar hún að því að tíminn sem er varið í hefðbundna starfsemi nýtist sem allra best. BizWorks er að finna á MyHerbalife.com og þjónustan er opin allan sólarhringinn sjö daga vikunnar. Einnig er í boði BizWorks‑app fyrir farsíma. Casa Herbalife: Casa Herbalife var kynnt til sögunnar árið 2005 með það að markmiði að styðja starfandi góðgerðarstofnanir sem breyta lífi barna. Casa Herbalife verkefnin eru flaggskipið í starfsemi Fjölskyldustofnunar Herbalife (HFF). Nafnið er dregið af heimili fyrir munaðarlaus börn í Brasilíu sem Mark Hughes (1956 ‑ 2000), stofnandi Herbalife og fyrsti meðlimur fyrirtækisins, byggði árið 1998. Starfsemin hefur breitt úr sér til allra heimshorna og nú hjálpar Casa Herbalife til við að tryggja börnum á yfir 90 stöðum í sex heimsálfum góða næringu. Hægt er að nálgast nýjustu upplýsingar á fréttasvæðinu á Herbalife.com eða á heimasíðu HFF, HerbalifeFamilyFoundation.org. Dreifingarhópur í upplínunni (Upline Organisation): Sponsorinn þinn, sponsorinn hans og þar fram eftir götunni upp á við. Dreifingarlína (Lineage): Allir meðlimir sem eru hluti af einum dreifingarhópi þar sem hver meðlimur hefur innskráð sig undir handleiðslu meðlimsins á næsta þrepi fyrir ofan. Fjölskyldustofnun Herbalife (Herbalife Family Foundation – HFF): Fjölskyldustofnun Herbalife (HFF) var stofnsett árið 1994 af Mark Hughes (1956 ‑ 2000), stofnanda Herbalife og fyrsta meðlim fyrirtækisins. Hér er um að ræða góðgerðarstofnun sem leggur kapp á að bæta líf barna með því að hjálpa öðrum góðgerðarsamtökum að tryggja þurfandi börnum heilnæma næringu. Þar að auki hefur HFF oft látið til sín taka við björgunarstarf í kjölfar náttúruhamfara víðs vegar í heiminum. Árið 2005 var HFF stolt af að kunngera fyrsta Casa Herbalife verkefnið. Í dag styður HFF yfir 120 Casa Herbalife verkefni í yfir 50 löndum og þjónar þannig yfir 100.000 börnum á hverjum einasta degi. HFF nýtur stuðnings sjálfstæðra meðlima í Herbalife, vina þeirra og fjölskyldna og einnig starfsfólks Herbalife. Fullgildingarmánuður (Qualifying Month): Mánuðurinn þegar meðlimur uppfyllir skilyrðin í tiltekinni réttindaöflun. Fullgildur Supervisor (Fully Qualified Supervisor – FQS): Meðlimur sem hefur uppfyllt öll nauðsynleg skilyrði til að verða Supervisor og á nú rétt á öllum hlunnindum sem Supervisorar njóta. Gullstaðalábyrgð Herbalife (Gold Standard Guarantees): Ábyrgð sem Herbalife veitir neytendum og tryggir þeim enn betri vernd en tíðkast almennt á þessu sviði. Hægt er að lesa um gullstaðalábyrgðina í heild sinni á Herbalife.com eða í umsókninni og samningnum um aðild að Herbalife. HBN-sjónvarpsstöðin/myndbandasafn (Herbalife Broadband Network/Video Library): Hér er átt við eigin myndbandaframleiðslu Herbalife og miðlun þessara myndbanda á netinu. Heildsöluhagnaður (Wholesale Profit): Mismunurinn milli afsláttarverðs sem sponsor greiðir og verðsins sem meðlimir í undirlínum hans greiða. Einnig er talað um heildsölutekjur (Commission). Heildsölutekjur (Commission): Mismunurinn milli afsláttarverðs sem sponsor greiðir og verðsins sem meðlimir í undirlínum hans greiða. Þetta er einnig kallað heildsöluhagnaður (Wholesale Profit). L.A. Live: Staðurinn þar sem Herbalife er með höfuðstöðvar sínar og aðalskrifstofur í miðbæ Los Angeles. Level 10: Að komast í sitt besta form – þ.e. Level 10 eins og Herbalife kallar það. Hvað í því felst getur síðan verið mismunandi eftir markmiði hvers og eins. Mánaðarlegur bónus (Production Bonus – PB): Bónus sem er greiddur til félaga í TAB Team sem hefur uppfyllt öll nauðsynleg skilyrði. Bónusinn nemur 2% til 7% af starfsemi alls undirlínuhópsins hans.
72
Made with FlippingBook