IBO Book - IC
3
VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR
Smökkunarteiti Hvað er smökkunarteiti?
Einföld starfsemi
Smökkunarteiti gefa kost á „persónulegum“ vettvangi (venjulega heima hjá nýjum viðskiptavini) til að tala um góða næringu og hreyfingarvenjur. Tilvalið er að kynna heilnæman morgunverð eða ákjósanlegan lífsstíl og bjóða svo samhliða því upp á ókeypis smökkun á Formula 1 máltíðardrykkjum og -stöngum. Slík teiti eru frábær leið til að veita mögulegum viðskiptavinum kynningu og fræðslu um kostina sem Formula 1 vörurnar eru gæddar. Hægt er að fjalla um allt þeim viðkomandi, allt frá ljúffengu bragðinu til þess hversu auðveldar þær eru í framreiðslu. Vegna hins notalega andrúmslofts, sem er laust við alla ágenga sölumennsku, verður auðveldara að skapa sér vísanir á enn fleira fólk sem tengist áhrifahring hins nýja viðskiptavinar. Hvernig getur þetta hjálpað þér að finna nýja viðskiptavini og veita virðisaukandi þjónustu? • Hjálpaðu fólki að átta sig á vörunum við þægilegar aðstæður innan veggja heimilisins. • Kynntu heilnæman morgunverð eða ákjósanlegan lífsstíl og framkvæmdu svo stutt lífsstílsmat. Bjóddu síðan gestunum að bóka annan fund við þig í næstu viku til að framkvæma lífsstílsmat í heild sinni ásamt meðfylgjandi mælingu á líkamssamsetningu.
HOLLRÁÐ Mundu að fá vísanir á fleira fólk hjá gestum þínum!
➡➡ Smökkunarteiti gefa frábært tækifæri til að tala um góða næringu og hreyfingarvenjur og leiða fólki fyrir sjónir það virði og þann ávinning sem felst í heilnæmum og virkum lífsstíl. ➡➡ Biddu núverandi viðskiptavini þína að kalla saman nokkra vini heim til sín þar sem þú getur hjálpað þeim að halda smökkunarteiti með ókeypis prufum og tækifæri gefst til að spjalla um góða næringu í skemmtilegu og afslöppuðu umhverfi. ➡➡ Sem eftirfylgni skaltu svo bjóða mögulegum viðskiptavinum í kynningu á heilnæmum morgunverði eða ákjósanlegum lífsstíl og framkvæma síðan lífsstílsmat með ítarlegri mælingu á líkamssamsetningu.
Boð
Kynning og virðisauki
Samræður, mat og flokkun
Stuðningur við viðskipta vini og tryggð
1
2
3
4
25
Made with FlippingBook