IBO Book - IC
3
VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR
Snyrtivöruteiti Hvað er snyrtivöruteiti?
Einföld starfsemi
Rétt eins og smökkunarteiti eru snyrtivöruteiti frábær til að opna gáttina að nýju fólki. Þau gefa kost á að veita bæði nýjum og núverandi viðskiptavinum ókeypis og dýrmæta þjónustu og sýna um leið vöruúrvalið frá Herbalife við afslappaðar aðstæður.
Hvernig getur þetta hjálpað þér að finna nýja viðskiptavini og veita virðisaukandi þjónustu? • Boð í ókeypis andlitssnyrtingu er einstaklega góð leið til að skapa áhuga á snyrtivöruúrvali Herbalife hjá mögulegum viðskiptavinum, núverandi viðskiptavinum, fjölskyldumeðlimum þínum og vinum. • Um leið og þú hefur viðað að þér staðgóðum fróðleik um snyrtivörur, næringu og Herbalife getur þú leyft öðrum að njóta góðs af þeirri sérþekkingu þinni með reglulegum hætti. • Biddu um vísanir á enn fleira fólk. Gestir þínir verða vafalaust stórhrifnir af teitinu þínu. Biddu þá um nöfn á fleirum sem gætu kunnað að meta að komast í sams konar andlitssnyrtingu ókeypis. • Snyrtivöruteiti eru gagnleg leið til að skapa þér sölu. Gríptu tækifærið um leið og þú sérð áhuga vakna hjá gestum þínum og mæltu með vörum. • Þú getur einnig boðið mögulegum viðskiptavinum að gangast undir húðheilsumat. Það hjálpar þér að skera úr um húðgerð mögulegs viðskiptavinar og þarfir hans fyrir húðsnyrtivörur. Eftir það verður auðveldara fyrir þig að setja saman sérvalinn vörupakka einmitt fyrir hann. Húðheilsumatið er að finna í vörubæklingnum eða á MyHerbalife.com.
Discover beautiful healthy skin Laðaðu fram fallega og h ilbrigða húð
HOLLRÁÐ Hjálpargögn og ýmiss konar varningur sem Herbalife býður upp á fyrir snyrtivöruteiti hjálpa þér að líta út og líða eins og sannkallaður fagmaður. Þú getur keypt settið sem sést hér fyrir neðan á MyHerbalife. com: Vörunúmer (SKU): 8770.
➡➡ Snyrtivöruteiti gefa úrvalsgott tækifæri til að tala um ávinninginn af því að næra húðina með góðum vörum. ➡➡ Sem eftirfylgni getur þú boðið mögulegum viðskiptavinum að mæta hjá þér í húðheilsumat, en þú getur einnig boðið upp á það í sjálfu snyrtivöruteitinu.
Boð
Kynning og virðisauki
Samræður, mat og flokkun
Stuðningur við viðskipta vini og tryggð
1
2
3
4
27
Made with FlippingBook