IBO Book - IC

3

VIRÐISAUKI OG UPPBYGGING TRYGGÐAR

Þyngdaráskorun Hvað er þyngdaráskorun?

Aðeins flóknari starfsemi

Þ Y N G D A R Á S K O R U N • H v e r j u h e f u r þ ú a ð t a p a ? •

Um er að ræða 12 vikna námskeið með fræðslu um lífsstíl og næringarmál þar sem hópur þátttakenda með svipuð þyngdartapsmarkmið getur sótt sér góðan stuðning. Slíkt hópastarf felur í sér innbyggða hvatningu og tryggir að reynslan verði gefandi og ánægjuleg. Þátttakendur greiða óverulegt inntökugjald til að fá þátttökurétt í slíku áskorunarnámskeiði og „þyngdartapsverðlaun“ eru greidd úr þessum sjóði til þeirra þriggja þátttakenda sem hafa lést um hæsta hlutfallið af þyngd sinni í lok námskeiðsins. Heimilt er að skipta út verðlaunum í reiðufé fyrir annars konar verðlaun eða vörur. Gæta verður þess þó að styðjast við gildandi lög í heimalandi sínu í því sambandi. Þetta er einstaklega góð starfsemi til að byggja upp tengsl við þátttakendur og skapa öflugt samfélag í leiðinni. Þú verður undrandi þegar þú sérð hversu öflugur stuðningshópur þetta getur orðið fyrir þátttakendur. Hvernig getur þetta hjálpað þér að finna nýja viðskiptavini og veita virðisaukandi þjónustu? • Áskorunarnámskeið gefa þér tækifæri til að safna saman hópi fólks með sameiginlegt markmið. Í hverri viku getur þú síðan fjallað um mismunandi næringarmálefni, sem gefa þér jafnframt tilefni til að tala um viðeigandi vörur frá Herbalife. • Eftir því sem áskorunarnámskeiðinu vindur fram

kynnast þátttakendur vörunum og átta sig á kostum þeirra og á sama tíma byggjast upp tengsl við þig og Herbalife.

➡➡ Bjóddu mögulegum viðskiptavini að taka þátt í skemmtilegri og gefandi þyngdaráskorun. ➡➡ Kynntu hugmyndafræði Herbalife um ákjósanlega næringu fyrir allan heiminn og haltu þig við þann ramma sem Herbalife hefur gefið út fyrir slík námskeið. ➡➡ Þyngdaráskorun er einstaklega árangursrík leið til að veita virðisaukandi þjónustu og byggja upp gjöful tengsl við viðskiptavini. Hún er afar gagnleg til að rækta tryggð meðal viðskiptavina því þar skapast vettvangur til að sækja sér ómetanlegan stuðning og reglulegar samverustundir. Að sama skapi tryggir hún þér gott tækifæri til að fylgjast gaumgæfilega með framförum hjá viðskiptavinunum, að verðlauna þá fyrir unnin afrek og síðast en ekki síst að byggja upp gefandi samfélag af fólki með svipað hugarfar.

HOLLRÁÐ Starfsemi á borð við þyngdaráskorun er úrvalsgóð leið til að byggja upp samfélagsmiðuð viðskipti.

Boð

Kynning og virðisauki

Samræður, mat og flokkun

Stuðningur við viðskipta­ vini og tryggð

1

2

3

4

29

Made with